Brjóstaskurðlækningar
Þverfagleg teymismóttaka brjóstateymis með víðtækri móttöku þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða ráðgjöf og meðferðir
Kristjana Guðrún Guðbergsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Svanheiður Lóa Rafnsdóttir, skurðlæknir
Hafðu samband
Hér erum við
Eiríksstaðir, Eiríksgötu 5, 4. hæð - Legudeild brjóstaskurðlækningadeildar er staðsett á kvenlækningadeild 21-A og dagdeild skurðlækninga 13D
Sjá á kortiHagnýtar upplýsingar
Brjóstasmiðstöð Landspítala, Eiríksstaðir, Eiríksgata 5, 101 Reykjavík
Skrifstofa brjóstaskurðlækningadeildar, Brjóstamiðstöð Landspítala, sími:543 9560
Legudeild brjóstaskurðlækningadeildar er staðsett á kvenlækningadeild 21-A og dagdeild skurðlækninga 13D
Skurðstofa brjóstaskurðlækningadeildar er staðsett á skurðstofum Hringbraut.
Þverfagleg teymismóttaka brjóstateymis með víðtækri móttöku þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða ráðgjöf og meðferðir:
- Einkennamóttaka: ráðgjöf, greining og mat vegna einkenna frá brjóstum
- Góðkynja sjúkdómar og breytingar í brjóstum: ráðgjöf, aðgerðir og eftirlit
- Brjóstakrabbamein: greining, móttaka, skurðmeðferð og eftirlit.
- Skurðaðgerðir og enduruppbygging brjósta: greiningaraðgerðir, krabbameinsskurðaðgerðir, brjóstanámsaðgerðir, hlutabrjóstnámsaðgerðir, brjóstaminnkun, brjóstauppbygging með púðum eða eigin vef, leiðréttingaraðgerðir eftir fyrri aðgerðir vegna brjóstakrabbameins, aðgerðir í holhönd og eitlatökur
-
Áhættueftirlit, ráðgjöf og skurðmeðferð:
- Skimun og eftirlit með einstaklingum með áhættustökkbreytingar (BRCA og aðrar hááhættustökkbreytingar) eða með sterka fjölskyldusögu um brjóstakrabbamein.
- Einstaklingsmiðuð ráðgjöf og eftirlit. Skipulag með framkvæmd sérskoðana brjósta með segulómskoðun og brjóstamynd.
- Áhættuminnkandi brjóstnámsaðgerðir með og án brjóstauppbygginga. - Hjúkrunarmóttaka brjóstateymis: sérhæfð móttaka með einstaklingsmiðaðri nálgun. Eftirlit eftir skurðaðgerðir, eftirfylgd brjóstauppbygginga, sáraskiptingar, sérhæfðar sárameðferðir, uppbygging geirvörtu með tattú, heildræn fræðsla og ráðgjöf
- Tilvísun frá heilsugæslu, læknastofum eða öðrum heilbrigðisstofnunum
- Tilvísun frá erfðamóttöku Landspítala
- Tilvísun frá brjóstamyndgreiningu Landspítala