Leit
LokaEitraðar plöntur
Skipta má plöntum gróflega í tvo flokka hvað varðar eituráhrif þeirra á menn.
- Annars vegar eru plöntur sem í eru eiturefni sem geta haft áhrif á miðtaugakerfið og/eða hjartað
- Hins vegar plöntur sem í er safi sem er sérstaklega ertandi fyrir slímhimnur, augu og húðina
Pottablóm
Þegar nýjar pottaplöntur eru keyptar er rétt að athuga hvort þær geti verið eitraðar, flestar blómabúðir geta gefið upplýsingar um það.
Einnig er hægt að fá upplýsingar hjá eitrunarmiðstöðinni.
- Dæmi um eitraðar pottaplöntur:Jólastjarna ( Euphorbia pulcherrima )Köllubróðir ( Dieffenbachia)
Garðurinn
Í garðinum geta leynst eitraðar plöntur, mikilvægt er að brýna fyrir börnum að stinga ekki upp í sig blómum, laufblöðum, berjum eða sveppum í garðinum.
Dæmi um eitraðar plöntur í görðum:
Töfratré eða töfrarunni ( Daphne mezereum) – mikið eitruð | Gullregn (Laburnum) |
Meiri upplýsingar um eitraðar plöntur