Leit
Loka

Sálgæsla presta og djákna

Fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk spítalans, án tillits til lífsskoðana eða trúarafstöðu, sem glímir við sárar tilfinningar og erfiðar tilvistarspurningar tengdar veikindum og alvarlegum áföllum

Banner mynd fyrir  Sálgæsla presta og djákna

Hagnýtar upplýsingar

Sjúkrahúsprestar og djákni á Landspítala sinna sálgæslu og helgihaldi og starfa í samvinnu við aðra heilbrigðisstarfsmenn að velferð sjúklinga og aðstandenda þeirra. Unnið er bæði með einstaklingum og fjölskyldum. Boðið er upp á fjölskyldufundi og eftirfylgd. Sjúkrahúsprestar og djákni sinna einnig fræðslu, handleiðslu og hópastarfi.

Markmið sálgæslunnar er að liðsinna þeim sem glíma við sárar tilfinningar og erfiðar tilvistarspurningar tengdar veikindum og alvarlegum áföllum. Þjónustan stendur öllum opin, jafnt sjúklingum sem aðstandendum og starfsfólki spítalans, án tillitis til lífsskoðana eða trúarafstöðu.

Hafa samband.  Sjúkrahúsprestar og djákni ganga vaktir þannig að hægt er að ná í þá hvaða tíma sólarhringsins sem er allt árið um kring. Beiðnum um þjónustu má koma á framfæri við sjúkrahúsprest, djákna, hjúkrunarfræðing eða lækni.  

Helgihald. Reglubundið helgihald fer fram bæði á helgum og rúmhelgum dögum. Nánari upplýsingar um það eru veittar á deildinni og að jafnaði í viðburðadagatalinu á forsíðu vefs Landspítala.  

Sálgæsla presta og djákna

 

Starfsmenn

Anna Hulda Júlíusdóttir sjúkrahúsdjákni
Landspítali Hringbraut
s. 543-8415 / 824-5588

Dagbjört Eiríksdóttir djákni
Landspítali Hringbraut kvenna og barnadeildir
s. 543-8027 /824-5506
 

Eysteinn Orri Gunnarsson sjúkrahúsprestur 
Landspítali Fossvogi
s. 543-4273 / 824-5508

Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir sjúkrahúsprestur 
Landspítali Kópavogi Líknardeild
s. 543-8249 / 824-5507  

Gunnar R. Matthíasson sjúkrahúsprestur
Landspítali Fossvogi
s. 543-8308 / 824-5501  

Hjördís Perla Rafnsdóttir sjúkrahúsprestur
Landspítali Fossvogi
s. 543-7425 / 824-5809

Ingólfur Hartvigsson sjúkrahúsprestur
Landspítali Hringbraut Krabbameinsdeildir og Grensás
s. 543-8415 / 824-5505 
 

Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir sjúkrahúsprestur
Landspítali Landakot Öldrunardeildir og B-4 Fossvogi
s. 543-8248 / 824-8245 

Þuríður Björg Wiium Árnadóttir sjúkrahúsprestur
Landspítali Hringbraut
s. 543-9244 / 824-5503

Sálgæsla getur reynst hjálpleg þegar fólk

  • þarfnast traustrar nærveru, uppörvunar og stuðnings
  • er kvíðið, óöruggt, dapurt, reitt eða sorgmætt
  • þarfnast einhvers sem hlustar og leitast við að skilja það
  • þarfnast leiðsagnar í samskiptum við starfsfólk eða fjölskyldu sína
  • vill tala um trú sína, efasemdir og spurningar og dýpka eigin svör og skilning
  • leitar tilgangs
  • er að missa stjórnina
  • vill fyrirbæn og hjálp til trúariðkunar
  • þarfnast eftirfylgdar

Á Landspítala eru 6 kapellur sem eru notaðar í þjónustu presta og djákna og fyrir samveru- og kyrrðarstundir:

  • Fossvogur (tvær)
  • Hringbraut
  • Landakot
  • Kleppur
  • Líknardeildin í Kópavogi

Sjúkrahúsprestar og djákni á Landspítala liðsinna aðstandendum eftir því sem óskað er, leiða kveðjustund og veita nauðsynlegar upplýsingar um framvindu mála eða kalla til viðkomandi sóknarprest sé þess óskað.

Andlát - upplýsingasíða

 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?