Leit
Loka

Öldrunarþjónusta

Markmið öldrunarlækningadeilda er greining, meðferð og endurhæfing aldraðra sem þjást af margs konar sjúkdómum. Miðstöð öldrunarlækninga er á Landakoti en einnig er deild í Fossvogi.

Banner mynd fyrir  Öldrunarþjónusta

Hafðu samband

Öldrunarlækningadeildir Landakoti - mynd

Hér erum við

Landakot en einnig í Fossvogi

Öldrunarlækningadeildir

Á deildinni fer fram greining, meðferð, ráðgjöf, eftirlit og vísindarannsóknir. Á deildina er vísað fólki sem er 67 ára og eldra sem glímir við langvarandi heilsubrest og versnandi færni.

Deild L1 er virk 7 daga endurhæfingadeild sem leggur áherslu á endurhæfingu sjúklinga 67 ára og eldri sem hafa hlotið mjaðmarbrot og þurfa að fara í aðgerð vegna þess. Öldrunarlæknar á Landspítala eru ráðgefandi um hvort þetta úrræði eigi við. Einnig er deildin í samstarfi við göngudeild öldrunarlækninga og ef talin er þörf á þá geta einstaklingar lagst inn að heiman í uppvinnslu og endurhæfingu.

Öldrunarlækningadeild og endurhæfingadeild L1

Meginviðfangsefni deildarinnar er greining og meðferð bráðra sjúkdóma hjá öldruðum. Oft er í bakgrunninn hrumleiki, færniskerðing eða öldrunarheilkenni sem ný veikindi bætast við.

B4 Bráðaöldrunarlækningadeild

Meginstarf á öldrunarlækningadeild K1 felst í meðferð og endurhæfingu aldraðra.  Markmiðið er að auka hæfni einstaklingsins til þess að takast á við athafnir daglegs lífs og/eða auka líkamlega, andlega og félagslega færni þeirra.

K1 öldrunarlækningadeild A

Á öldrunarlækningadeild K2 koma aldraðir sem þurfa innlögn úr heimahúsi vegna fjölþætts heilsufarsvanda, færnitaps, félagslegs vanda eða frá bráðadeildum Landspítala og þurfa mat, greiningu, hjúkrunar- og læknismeðferð og endurhæfingu eftir að bráðveikindum hefur verið bægt frá.

Öldrunarlækningadeild K2

Starfið á útskriftardeild aldraðra L2 byggir á endurhæfingu fyrir aldraða sem útskrifast heim til sín á 2-4 vikum frá innlögn á deildina.  Markmið endurhæfingar er að einstaklingar nái bættri hreyfigetu og geti sjálfstætt leyst af hendi sem flestar athafnir daglegs lífs. Þess vegna er hvatt til sjálfshjálpar og þátttöku í daglegum athöfnum og máltíðum. Dagleg viðfangsefni eru lækning, hjúkrun, félagsráðgjöf og sjúkra- og iðjuþjálfun.

Útskriftardeild aldraðra L2

 

Öldrunarlækningadeild F, L3 er legudeild öldrunarlækninga.

Á deildina koma aldraðir sem eru með staðfest færni og heilsumat, af öðrum deildum Landspítala og eru á bið eftir plássi á hjúkrunarheimili.

Sjá nánari upplýsingar um deildina

Öldrunarlækningadeild C, L4 á Landakoti er sérhæfð meðferðar- og endurhæfingadeild, opin sjö daga vikunnar.  Starfsemin miðar að þjónustu við sjúklinga með heilabilunarsjúkdóma. Meginmarkmiðið er að auka lífsgæði með því að skapa öryggi og veita umhyggju í rólegu umhverfi þar sem þjónusta við sjúklinga og fjölskyldu byggir á þekkingu og framþróun.

Öldrunarlækningadeild C, L4

Sérhæfð líknardeild fyrir aldraða

Öldrunarlækningadeild C, L5

Aðsetur: 5. hæð L -álma Landspítala Landakoti.
Sími: 543 9898
Heimsóknartími: Alla daga og er alveg frjáls

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?