Meltingarteymi - Barnaspítali
Boðið er upp á reglubundna eftirfylgni fyrir skjólstæðinga teymisins á göngudeild barna.
Hvernig er best að ná í okkur?
Tilvísanir þurfa að berast skriflega frá læknum eða hjúkrunarfræðingum til sérfræðilæknis teymisins.
Tímapantanir fyrir skjólstæðinga teymisins á göngudeild barna 20E í síma 543 3700 eða 543 3701 í samráði við starfsmenn þess.
Hagnýtar upplýsingar
Þverfaglega teymið á göngudeild barna með meltingarfærasjúkdóma leggur áherslu á að aðstoða börn og unglinga með sjúkdóma í meltingarfærum og fjölskyldur þeirra með ráðgjöf, fræðslu og stuðningi.
Boðið er upp á reglubundna eftirfylgni fyrir skjólstæðinga teymisins á göngudeild barna.
Þar hitta börnin og fjölskyldur þeirra hjúkrunarfræðing og lækni.
Á göngudeildinni fara einnig fram viðtöl við félagsráðgjafa, næringarfræðing og sálfræðing eftir þörfum hvers og eins.
Meltingarteymi Barnaspítalans
- Bergljót Steinsdóttir hjúkrunarfræðingur
- Erna Petersen næringarfræðingur
- Gisela Lobers næringarfræðingur
- Heiða D. Sigurjónsdóttir talmeinafræðingur
- Jóhanna Guðrún Pálmadóttir læknir
- Kristín Hallgrímsdóttir sálfræðingur
- Úlfur Agnarsson læknir
- Zinajda Alomerovic Licina félagsráðgjafi