Göngudeild skurðlækninga B3
Á deildinni er veitt sérhæfð göngudeildarþjónusta auk ráðgjafar og kennslu. Þar fara fram ýmsar rannsóknir, greiningar og meðferðir á vegum háls-, nef- og eyrnalækna, heila- og taugaskurðlækna, lýtalækna og æðaskurðlækna.
Sigrún Arndís Hafsteinsdóttir
Hafðu samband
Símatímar hjá B3 eru 10:00-12:00 alla virka daga. Leyst úr erindum sem varða:
- vottorð
- lyfseðla
- lyfjaendurnýjanir
- skilaboð til lækna
- upplýsingar um tímapantanir
Deildir
Innskrift og undirbúningur fyrir skurðaðgerð, þar á meðal fræðsla og nauðsynlegar rannsóknir. Í vissum tilfellum þurfa skjólstæðingar að klára sína innskrift með viðkomu á Svæfingarmiðstöð 10E Hringbraut.
Á göngudeildinni fer fram uppvinnsla, greining og meðferð sjúklinga með vandamál frá hálsi, nefi og eyrum. Einnig eru framkvæmdar minni aðgerðir og inngrip í staðdeyfingu auk endurkoma og eftirlits eftir innlagnir á bæði dag– og legudeild sérgreinarinnar.
Sérfræðilæknar deildarinnar
- Arnar Þór Guðjónsson yfirlæknir
- Einar Kristinn Hjaltested
- Eva Albrechtsen
- Geir Tryggvason
- Guðni Páll Daníelsson
- Ólafur Guðmundsson
- Sigríður Sveinsdóttir
- Sigurður Júlíusson
- Þorsteinn Hreiðar Ástráðsson
- Örnólfur Þorvarðsson
Sérfræðilæknir deildar
Steen Magnús Friðriksson, yfirlæknir
Sérfræðilæknir deildar
Gunnar Auðólfsson yfirlæknir
Göngudeild æðaskurðlækninga
- Lilja Þyri Björnsdóttir - móttaka á miðvikudögum, kl. 9:00-13:00
- Karl Logason - móttaka á mánudögum, kl. 10:00-12:00
- Zoran Podvez- móttaka á föstudögum 10:00-13:00
- Oscar David Rubio Bermeo- móttaka á mánudögum 10:00-13:00
Deildarlæknar- móttaka á mánudögum 10:00-12:00
Á göngudeildinni er aðallega hugað að sjúklingum með slagæðasjúkdóma.
- Viðtal við sjúkling og hefðbundin líkamsskoðun.
- Rannsóknir á æðakerfinu; mældur þrýstingur í útlimum og ómskoðun..
Þjónustutími: Móttaka á 6 til 8 vikna fresti eftir samkomulagi.
Æðaflækjuteymi Landspítala er þverfaglegt með aðkomu æðaskurðlækna, ífarandi röntgenlækna, lýtalækna, handarskurðlækna, háls-, nef- og eyrnaskurðlækna, barnabæklunarlækna auk annarra eftir því sem við á.
Teymið skoðar myndrannsóknir fyrirfram og ræðir svo við og skoðar sjúkling saman. Það veitir ráð um meðferð, gerir beiðnir fyrir hjálpartæki ef við á og ákvarðar þörf fyrir eftirfylgd.
Tilvísun frá lækni þarf til að bóka tíma hjá æðaflækjuteymi og er tilvísun beint til umsjónarmanns teymisins:
Eyrún Ó. Guðjónsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur, eyrunosk@landspitali.is.
Senda má rafræna tilvísun eða beiðni um ráðgjöf gegnum Sögukerfi eða senda skriflega tilvísun í bréfpósti á Æðaflækjuteymi, B3, Landspítali Fossvogi, Reykjavík.
Á sáramiðstöð er áhersla á greiningu og ráðgjöf við meðferð langvinnra sára. Starfsemi er þverfagleg; hjúkrunarfræðingar sinna sjúklingi í samvinnu við æðaskurðlækna, húðlækna, lýtalækna, innkirtlalækna, smitsjúkdómalækna, bæklunarlækna og fótaaðgerðafræðing.
Að loknu mati á sáramiðstöð er ákveðið hvort þörf er á frekari meðferð eða eftirfylgd þar.
Tilvísun. Til að fá þjónustu þarf tilvísun frá heilbrigðisstarfsmanni sem getur til dæmis verið læknir, hjúkrunarfræðingur eða fótaaðgerðafræðingur.
Beiðnum er sinnt eins fljótt og auðið er.
Gera má ráð fyrir bið í allt að þrjár vikur ef beiðni er ekki metin brýn.
Fræðsluefni
- Aðgerð í munnholi
- Aðgerð vegna nefbrots
- Aðgerð vegna poka á vélinda (Zenkers diverticulum)
- Barkaraufartúba (tracheostomy) - útskriftarfræðsla
- Brottnám barkakýlis
- Eitlahreinsun úr hálsi (neck dissection)
- Eitlataka úr hálsi
- Enduruppbygging á hljóðhimnu
- Hálskirtlataka
- Hlutabrottnám neðri kjálka
- Kalkkirtlar fjarlægðir
- Kalsíumskortur í blóði eftir skurðaðgerð vegna ofvirks kalkkirtils
- Meniére sjúkdómur
- Munnvatnskirtill fjarlægður
- Nefblæðing
- Nefsjáraðgerð (FESS)
- Skurðaðgerð á skjaldkirtli
- Skurðaðgerð á kjálka vegna bitskekkju
- Skurðaðgerð á úf og mjúka gómi (UPPP)
- Smásjáraðgerð á barkakýli
- Umhirða barkaraufartúbu og húðar í heimahúsi
- Uppbygging kjálka með beini frá mjaðmarkambi
- Viðgerð á skökku miðnesi (septum plastic) - fræðsluefni
- Aðgerð á vör hjá barni
- Brjóstaminnkun
- Endursköpun brjósts með bakfellsflipa - Latissimus dorsi
- Endurskoðun brjósts með Diep-flipa
- Hlutabrottnám neðri kjálka
- Hlutabrottnám neðri kjálka - útskriftarfræðsla
- Húðágræðsla (transplant)
- Kynfærauppbygging - vagionplasty (útskriftarfræðsla)
- Skurðaðgerð vegna þrýstingssárs (flipaaðgerð)
- Aflimun á fótlegg fyrir ofan eða neðan hné
- Aflimun á tám eða fremsta hluta fótar
- Fóðring á ósæði
- Ísetning ígrædds blóðskilunarleggs
- Meðferð með sárasugu
- Skurðaðgerð á ósæð
- Slagæðaaðgerð á ganglim
- Skurðaðgerð á hálsslagæðum
- Slagæðaþræðing
- Umgengni við fistil
- Umgengni við ígræddan blóðskilunarlegg
- Umgengni við æðagraft
- Æðahnútaaðgerð
- Æðastíflubrottnám í nára
- Heltiganga - Vánaligt gongulag - á færeysku
- Skurðaðgerð á ósæð - Skurðviðgerð í meginlívæðr - á færeysku
- Slagæðaþræðing - Angiografi - á færeysku