Leit
LokaMatstæki
- ADL-Taxonomy metur/lýsir færni einstaklinga við ýmsar daglegar athafnir. Matstækið einblínir á vana, hlutverk og þarfir einstaklingsins og metur þær athafnir sem eru mikilvægar fyrir hvern og einn. Hægt er að nota matstækið sem áhorf. spurningarlista og/eða viðtal.
- Áhugalistinn (Interest Checklist) er gátlisti um tómstundaiðju skjólstæðinga. Skjólstæðingur gerir grein fyrir áhugamálum sínum í fortíð, nútíð og framtíð. Listinn hjálpar skjólstæðingnum við að finna nýjar tómstundir og /eða ýta undir fyrri tómstundaiðju. t.d. eftir sjúkdóma/áföll.
- Áhrifaþættir iðju - OCAIRS(Occupational Circumstances Assessment Interview and Rating Scale) er matstæki sem hefur það að markmiði að meta þátttöku í iðju. OCAIRS er viðtalsmatstæki og með því er safnað upplýsingum un skjólstæðinginn, iðju hans og umhverfi.
- A-ONE (Árnadóttir OT-ADL Neurobehavioral Evaluation) er staðlað matstæki sem notað er til að meta samtímis færni við eigin umsjá, þ.e. að klæðast, sinna persónulegu hreinlæti, fara um á dvalarstað, borða og hafa tjáskipti sem og einkenni sem tengjast röskun á taugaatferli.er viðtalsmatstæki og með því er safnað upplýsingum um skjólstæðinginn, iðju hans og umhverfi.
- Assessment of Motor and Process Skills - AMPS er staðlað matstæki sem metur samtímis færni við iðju og framkvæmdaþætti er varða hreyfingu og verkferli, með tilliti til sjálfstæðis, öryggis, skilvirkni og áreynslu.
- A-TWO (Kitchen Task Observation) er stöðluð aðferðt til að meta getu skjólstæðings til að laga létta máltíð (súpu) og leggja á borð.
- BOT-2 (Bruininks-Oseretsky Test of Motor Proficiency | Second Edition) er staðlað hreyfiþroskamat sem ber frammistöðu barnsins saman við hóp bandarískra jafnaldra. Lagt er mat á fjögur hreyfisvið sem eru stjórn fínhreyfinga, samhæfing handa, samhæfing grófhreyfinga og styrkur og snerpa. Hvert hreyfisvið skiptist í tvo undirþætti.
- Box and block er staðlað próf sem metur grófhreyfingar handa, fingra og handleggja.
- Cape og PAC - Children Assessment of Participation and Enjoyment er matstæki sem metur og kortleggur þátttöku og ánægju barna og unglinga á daglegum athöfnum. Metin er fjölbreytni, ánægja, tíðni og umfang athafnanna sem einstaklingurinn tekur þátt yfir fjögurra mánaða tímabil.
-PAC - Preferences for Activities of Children metur áhuga fyrir ýmsum athöfnum. Listarnir eru ætlaðir einstaklingum á aldrinum 6-21 árs. - Dynamometer er staðlað próf sem metur gripstyrk í pundum.
- Færni barna við daglega iðju - FBDI er spurningarlisti ætlaður til að afla upplýsingar um færni skólabarna við ýmsar athafnir. Það er eigin umsjá, leik- og tómstundaiðja, þátttaka í skólastarfi, skynjun og hreyfingar og handbeiting og fínhreyfivinna.
- Framkvæmdagreining er nákvæm greining á iðjuvanda sem byggist á áhorfi. Horft er á skjólstæðing framkvæma fyrirfram ákveðið verk og gæði framkvæmdar metin.
- Gaumstolspróf meta hvort einstaklingur gefur gagnstæðri átt gaum og bregðist við því sem gerist í þeirri átt t.d. eftir heilablóðfall.
- Gátlisti um streitu og bjargráð - SMQ (Stress Mastery Questionnaire) er gátlisti sem skiptist í þrjá hluta.I. hluti metur einkenni, tilfinningar og vandamál sem upp koma vegna streitu. II.hluti aðstæður og hugsanir er valda streitu. III.hluti metur bjargráð, hvað einstaklingurinn gerir til að draga úr streitu hjá sér.
- Hlutverkalistinn er gátlisti þar sem leitast er eftir að fá upplýsingar um mat skjólstæðings á þátttöku hans í 10 mismunandi hlutverkum sem hann hefur stundað áður, stundar núna eða muntlangar að stunda í framtíðinni. Einnig er spurt um hvaða gildi hvert hlutverk hefur fyrir einstaklinginn, áhugi hans á að sinna hlutverkinu og sátt við frammistöðu í núverandi hlutverkum.
- Iðjuhjólið er matstæki sem veitir yfirsýn yfir daglega iðju þ.e. eigin umsjá, störf og tómstundaiðju skjólstæðings yfir sólarhring.
- Iðjusaga – OPHI-II (Occupational performance history interview) er notuð til að fá heildarsýn á lífssögu einstaklinga. Matstækið er viðtalsmatstæki.
- Klukkupróf metur m.a. rýmdarskynjun, stýritruflun og úrvinnslu upplýsinga.
- Lowenstein Occupational Therapy Cognitive Assessment - LOTCA er einkennamiðað matstæki sem metur vitsmunastarfsemi, hæfni og takmarkanir einstaklinga með einkenni eftir heilablóðfall eða heilaskaða af völdum slyss.
- Mat barns á eigin iðju - COSA (Child Occupational Self-Assessment) er sjálfsmat sem samanstendur af 25 þáttum sem lýsa á einfaldan hátt því sem börn almennt gera í daglegu lífi. Þessi atriði spanna færni og þátttöku barna í leik og starfi. Annars vegar metur barnið hversu vel því gengur að framkvæma tiltekna athöfn og hins vegar hversu mikilvæga barnið metur athöfnina.
- Mat á eigin iðju - OSA (Occupational Self-Assessment) er matstæki sem hefur þann tilgang að fá fram mat skjólstæðings á eigin færni við iðju og upplifun hans á umhverfi sínu. Skjólstæðingur forgangsraðar og setur sér markmið í samstarfivið iðjuþjálfa.
- Mat á framkvæmd vinnu - AWP (assessment of work perfofmance) metur færni við framkvæmd vinnu þar sem tekið er mið af því hve skilvirk og markviss framkvæmdin er og gæði útkomunnar.
- Mat á færni við akstur er gátlisti sem notaður er til að meta færni einstaklinga við akstur í þéttbýli.
- Mat á skynúrvinnslu - Sensory Profile er matslisti sem nýtist til að fá mynd af skynúrvinnslu. Metin er hegðun sem og viðbrögð við skynáreitum sem eru hluti af daglegum aðstæðum. Matstækið er staðalbundið og viðmið eru bandarísk. Matshlutar eru bragð og lykt, líkamsstaða, hreyfing, athygli, tilfinningar, sjón, snerting, virknistig, hegðun og heyrn.
- Mat á starfsumhverfi - WEIS (The Work Environment Impact Scale) er matstæki sem hefur það markmið að meta áhrif af vinnustað á frammistöðu einstaklingsins, ánægju og vellíðan.
- Mat á starfshlutverki - WRI (Worker Role Interview) er matstæki þar sem markmiðið er að fá mynd af þeim þáttum sem hafa áhrif á möguleika starfsmanns til að snúa aftur til vinnu eftir veikindi eða slys.
- Montreal Cognitive Asessment - MoCA er mat/skimun á vitrænni getu.
- Modified Barthel Index metur færni við athafnir daglegs lífs, s.s. klæðnað, snyrtingu og böðun.
- Mat nemanda á skólaumhverfi - MNS (School function interview) er matstæki þar sem sjónum er beint að umhverfinu í skólanum og það metið í náinni samvinnu við nemandann. Metin eru skólatengd verk, félagsleg tengsl við jafnaldra og starfsfólk, þátttaka, tjáning og þörf fyrir aðstoð/aðlögun í skólanum.
- MMSE (The Mini Mental State Examination) er mat/skimun á vitrænni getu.
- Mental Status Questionnaire - MSQ er mat/skimun á heilastarfsemi hjá öldruðum. Prófið reynir fyrst og fremst á áttun og minni.
- Mæling á færni við iðju - COPM (Canadian Occupational Performance Measurement) er matstæki þar sem skjólstæðingur greinir frá iðjuvanda tengda eigin umsjá, störfum og tómstundum. Skjólstæðingur forgangsraðar mikilvægi athafna sem hann vill auka færni sína við og metur frammistöðu sína og ánægju.
- Pinch mælir er staðlað próf sem mælir fingrastyrk í pundum.
- Purdue Pegboard er staðlað próf sem metur grófhreyfingar handa, fingra og handleggja auk fingrafimi.
- The Mini Mental State Examination - MMSE er mat/skimun á vitrænni getu.
- Sollerman er staðlað matstæki sem ætlað er til að meta handarfærni og byggir á sjö af átta algengustu handargripunum sem notuð eru í daglegu lífi.