Málastjóri í Laufeyjarteymi
Málastjóri með brennandi áhuga á þverfaglegri vinnu með einstaklingum með samslátt geð- og vímuefnavanda óskast til starfa í Laufeyjarteymi Landspítala. Starfið býður upp á mörg spennandi tækifæri til starfsþróunar. Staðan er laus frá 15. nóvember 2025 eða eftir samkomulagi og er starfshlutfall 80-100%. Eingöngu er um dagvinnu að ræða.
Laufeyjarteymi þjónustar einstaklinga sem lifa með langvarandi samslætti geðsjúkdóma og fíknar, á því stigi að hvort um sig er alvarlegt og óstöðugt í eðli sínu og fyrri og vægari meðferðarnálganir hafa ekki skilað árangri eða bættum lífsgæðum. Teymið þjónustar einstaklinga í þeirra nærumhverfi, á vettvangi. Unnið er eftir hugmyndafræði skaðaminnkunar, batamiðaðrar hugmyndafræði, áhugahvetjandi samtals og geðlæknisfræða.
Hlutverk málastjóra er fjölbreytt og felst meðal annars í mati á geðrænum einkennum og á einstaklingsbundnum þörfum, sinna meðferð og eftirfylgd, þróa meðferðaráætlanir og vöktun á árangri þjónustunnar. Málastjóri er talsmaður skjólstæðinga í samskiptum við kerfi og þjónustu í nánu notendasamráði sem byggir á góðu meðferðarsambandi. Málastjóri er einnig í samskiptum við aðstandendur og heldur utan um þá meðferð og endurhæfingu sem einstaklingurinn þarf á að halda.
Starfsemin er í stöðugri þróun og lögð er áhersla á virkt umbótastarf. Málastjórum standa til boða mikil tækifæri til vaxtar í starfi með markvissri handleiðslu og faglegum stuðningi. Í teyminu starfa hjúkrunarfræðingar, læknar, félagsráðgjafar og málastjórar.
Laufeyjarteymi er þverfaglegt teymi sem er starfrækt á göngudeild geð- og fíknisjúkdóma. Tvö teymi eru á göngudeildinni, Laufeyjarteymi og göngudeildarteymi og er mikið samstarf á milli þessara teyma. Góður starfsandi ríkir á deildinni og er starfsumhverfið fjölskylduvænt. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Elísabetu aðstoðardeildarstjóra ef óskað er eftir frekari upplýsingum um starfið.
- Málastjórn, þ.m.t. greining á þjónustuþörf, færni og gerð meðferðaráætlana, tryggja eftirfylgni, yfirsýn yfir samskipti, fræðsla, leiðbeiningar og heildrænn stuðningur
- Málsvarastarf fyrir skjólstæðinga
- Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi
- Stuðningur við aðstandendur
- Notendasamráð og þróun þjónustu
- Virk þátttaka í framþróun, uppbyggingu þjónustunnar og umbótastarfi deildar
- Önnur fjölbreytt verkefni
- Starfsleyfi sem heilbrigðisstarfsmaður
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsnám er kostur
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi sem og einlægur áhugi á að þjónusta og sinna einstaklingum með geðsjúkdóma og vímuefnavanda.
- Þekking á geðsjúkdómum, viðtalstækni og áhugahvetjandi samtölum
- Þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt hugarfar og hæfni til að starfa í þverfaglegu teymi
- Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði í mæltu og rituðu máli
- Gild ökuréttindi
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sálfræðingur, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, þroskaþjálfi, málastjóri
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5