Hjúkrunarfræðingur á dagdeild lyflækninga Fossvogi
Við auglýsum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á A3, dagdeild lyflækninga í Fossvogi. Á dagdeildinni sjá hjúkrunarfræðingar um sérhæfðar lyfjagjafir, m.a. gjöf mótefna og líftæknilyfja fyrir tauga- og lungnasjúklinga.
Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og ritari starfa saman í góðri samvinnu og teymisvinnu. Einingin tilheyrir A3, göngudeild lyflækninga í Fossvogi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Lyfjagjafir og eftirlit
- Fræðsla og kennsla til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu innan einingar
- Önnur verkefni á deild í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- æfileika í samskiptum og samvinnu
- Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna, hlutastarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5