Forstöðulæknir krabbameinsþjónustu
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf forstöðulæknis krabbameinsþjónustu frá 1. september 2024 eða eftir nánara samkomulagi samkvæmt nýju skipuriti spítalans sem tók gildi 1. apríl 2024. Forstöðulæknir starfar innan hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu og leiðir lækningar innan krabbameinsþjónustu.
Hlutverk forstöðulæknis er að þróa þjónustu við sjúklinga innan krabbameinsþjónustu og vinna að samhæfingu við aðra starfsemi spítalans í samræmi við stefnu og starfsáætlun Landspítala.
Forstöðulæknir heyrir undir framkvæmdastjóra og er hluti af sviðsstjórn og sem ber ábyrgð á stefnumótun og rekstri.
Forstöðulæknir leiðir ásamt forstöðuhjúkrunarfræðingi teymi framlínustjórnenda, þ.e. yfirlækna og deildarstjóra, sem hafa það sameiginlega verkefni að samhæfa, efla og þróa þá þjónustu sem veitt er á öruggan, faglegan og hagkvæman hátt. Forstöðulæknir ber ríkar og gagnkvæmar skyldur til samvinnu, samráðs og uppbyggingar teymisvinnu.
Leitað er að kraftmiklum leiðtoga, með klínískan bakgrunn, sem hefur brennandi áhuga á að vinna að því að byggja upp sterka liðsheild og að framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn spítalans.
Um er að ræða 100% starf. Auk stjórnunarhlutverks er gert ráð fyrir þátttöku í klínísku starfi í samráði við framkvæmdastjóra.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun lækninga í samstarfi við framkvæmdastjóra lækninga, yfirlækna og framkvæmdastjóra þjónustunnar
- Forysta um þjónustu við sjúklinga og þróun lækninga
- Samhæfing þjónustu og flæðis þvert á spítalann
- Efling mennta- og vísindastarfs
- Forysta um uppbyggingu öryggismenningar, gæða- og umbótastarfs og árangursvísa
- Uppbygging mannauðs og liðsheildar, ásamt ábyrgð á starfsmannamálum
- Ábyrgð á fjármálum og rekstri þjónustunnar auk þátttöku í gerð fjárhagsáætlunar
- Stefnumótun, markmiðasetning, áætlanagerð og eftirfylgni
- Þátttaka í þróun og nýsköpun
- Samhæfing faglegra verkefna innan sviðs og í samvinnu við önnur svið
- Klínísk störf í samræmi við menntun og sérsvið
- Háskólamenntun í læknisfræði og sérfræðileyfi í lækningum er skilyrði
- Önnur framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Klínískur bakgrunnur er skilyrði
- Reynsla af stjórnunarstörfum er skilyrði
- Þekking á gæða- og öryggismálum í heilbrigðisþjónustu
- Reynsla af að leiða umbótastarf, teymisvinnu og breytingastjórnun í heilbrigðisþjónustu
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
- Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
- Hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi 1. september 2024 og er hún ótímabundin í samræmi 41. gr. laga um opinbera starfsmenn (nr. 70/1996), að loknum reynslutíma.
Umsækjendur eru beðnir að skila ítarlegri náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi, er innihalda framtíðarsýn umsækjanda og rökstuðning fyrir hæfni til að gegna stöðunni, auk afrita af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Framtíðarsýn Landspítala er að:
- Veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu í fjölbreyttu og sístækkandi samfélagi og laga sig að breytilegum þörfum sjúklinga og aðstandenda þeirra.
- Vera miðstöð nýsköpunar, vísinda og menntunar á sviði heilbrigðisþjónustu og þróa sífellt nýjar lausnir til að mæta áskorunum samtímans.
- Vera eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar til sín og heldur í hæft starfsfólk á öllum starfssviðum spítalans.
- Hafa aðbúnað, fjármögnun og stuðning til að geta sinnt hlutverki sínu með sóma.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, stjórnunarstarf, forstöðumaður, sérfræðilæknir, læknir