Ársfundur Landspítala 2022 verður í Silfurbergi í Hörpu föstudaginn 13. maí, kl. 14:00 til 16:00.
Fundurinn verður í beinni útsendingu á miðlum spítalans.
Yfirskrift ársfundarins er „Framþróun í kjölfar faraldurins.“
Ávörp flytja Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Runólfur Pálsson forstjóri.
Ársreikningur 2021 verður kynntur og starfsfólk heiðrað.
Á ársfundinum verður fjallað um nýja nálgun í mannauðsmálum, vísindastarf á spítalanum, nýsköpun og umbætur í starfinu.