Rannsóknarráðstefna sérnámslækna í lyflækningum verður föstudaginn 18. mars 2022 á Nauthól í Reykjavík.
Rannsóknarráðstefnan er opin öllum sérnámslæknum í lyflækningum og öllum læknum lyflækningadeilda Landspítala og vísindamönnum í læknisfræði.
Skráning á ráðstefnuna til svanhvol@landspitali.is fyrir kl. 12:00 þann 16. mars.
Fundarstjórar: Helga Ágústa Sigurjónsdóttir klínískur prófessor og umsjónarlæknir ráðstefnunnar & Karl Andersen prófessor.
Öll ágrip verða prentuð sem fylgirit við Læknablaðið.
Dagskrá
13:00 - Setning ráðstefnunnar: Helga Ágústa Sigurjónsdóttir klínískur prófessor
13:15-13:45 - Um vit og vitleysu í læknisfræði og hvernig greina má á milli: Karl Andersen prófessor
13:45-15:00 - Ágrip sérnámslækna
13:45 - IL2 forgenameðferð og T stýrifrumur draga úr bólgu og liðskemmdum í Staphylococcus aureus liðsýkingu í músum: Berglind Bergmann
14:00 - Stenotrophomonas maltophilia blóðsýkingar á Íslandi: Ólafur Orri Sturluson
14:15 - Bráður nýrnaskaði á bráðamóttöku - Framsýn, tilfellamiðuð rannsókn: Telma H Ragnarsdóttir
14:30 - Ættlægni sarklíkis á Íslandi. Íslenska sarklíkisrannsóknin: Berglind Árnadóttir
14:45 - Alvarlegur astmi á Íslandi og tíðni fylgisjúkdóma: Áslaug Dís Bergsdóttir
15:00-15:30 - Kaffi
15:30-16:00 - Alþjóðleg vísindi á sveitaspítala: Gunnar Þór Gunnarsson hjartalæknir, Sjúkrahúsið á Akureyri
16:00-16:30 - Doktorsnám samhliða sérnámi í lyflækningum - hvernig upplifði ég það?: Nýdoktor Vilhjálmur Steingrímsson
16:30-17:15 - Ágrip sérnámslækna
16:30 - Ofbeldi og áhættuþættir fyrir hjarta- og æðasjúkdóma í sænsku þýði: Rebekka Lynch
16:45 - Afrakstur skimunar fyrir forstigum mergæxlis á Íslandi. Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar Blóðskimunar til bjargar: Sæmundur Rögnvaldsson
17:00 - Greining og skráning bráðs nýrnaskaða á bráðamóttöku Landspítala: Margrét Kristjánsdóttir
17:15-17:45 - Af hverju er gaman að gera vísindarannsóknir?: Heiðursvísindamaður Landspítala 2021, Gunnar Guðmundsson prófessor
17:45 - Léttar veitingar
19:00 - Kvöldverður