Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala 24. mars 2021:
Í ljósi samfélagssmita COVID-19 verður Landspítali færður af óvissustigi á hættustig á miðnætti. Í hættustigi felst að orðinn atburður kallar á að starfað er eftir viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsóttar. Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd koma saman reglulega og eftir þörfum eftir því sem atburðum vindur fram.
Á fundi viðbragðsstjórnar og farsóttanefndar var ákveðið að grípa til eftirfarandi ráðstafana sem gilda frá miðnætti í kvöld, 24. mars 2021, og þar til annað verður ákveðið:
Sjúklingar og gestir
1. Heimsóknir takmarkast við einn gest á dag til hvers sjúklings. Hámarksdvöl er ein klukkustund. Brýnt er að heimsóknargestir viðhafi persónulegar sóttvarnir, noti andlitsgrímur, virði fjarlægðarmörk (2 metra) og séu fullvissir um að þeir hafi engin einkenni sem samrýmst geta einkennum COVID-19.
2. Á dag- og göngudeildum og öðrum meðferðarsvæðum gilda reglur um hámarksfjölda í rými (10 manns) og eru sjúklingar beðnir að kynna sér aðstæður á þeim deildum sem þeir eiga erindi á.
3. Ekki er gert ráð fyrir fylgdarmönnum með sjúklingum sem leita meðferða á dag- og göngudeildum á spítalanum nema í sérstöku samráði við viðkomandi deildir.
4. Sé flutningur sjúklings á aðra stofnun fyrirhugaður skal taka af honum sýni áður en flutningur fer fram.
Starfsfólk
Nú liggur fyrir að næstu daga verður unnt að hefja bólusetningu 2.000 starfsmanna með bóluefni Pfeizer. Starfsmenn munu fá boð í bólusetningu í farsíma sína. Munu þá ríflega 90% starfsmanna spítalans hafa hafið bólusetningu.
Starfsfólk er beðið um að huga sérstaklega að persónulegum sóttvörnum, notkun andlitsgríma alltaf og alls staðar, virða fjarlægðarmörk og fjöldatakmarkanir í kaffistofum og matsölum spítalans. Áréttað er að reglur gilda um alla starfsmenn, bólusetta jafnt sem óbólusetta sem og aðra þá sem hafa mótefni gegn COVID-10.
1. Því er beint til starfsmanna að sinna vinnu sinni í fjarvinnu, sé þess nokkur kostur, í samráði við sína yfirmenn.
2. Fundir skulu vera á fjarfundaformi
3. Starfsmenn eru eindregið hvattir til að forðast ferðalög næstu vikur og gæta fyllstu varúðar innan og utan vinnustaðar
4. Verði starfsmaður var við minnstu einkenni skal hann óska eftir sýnatöku hjá starfsmannahjúkrunarfræðingi (starfsmannahjukrun@landspitali.is).Þetta gildir einnig um bólusetta starfsmenn.
5. Kaffistofur starfseininga fara aftur í fyrra horf, fjöldi takmarkast af fjarlægðarmörkum - miðað við 2 metra
6. Taka skal sýni hjá sjúklingum sem flytjast á milli stofnana
7. Gert er ráð fyrir breytingum á framleiðslu matar í matsölum og er starfsfólk beðið um að fylgjast með tilkynningum og fylgja fyrirmælum í matsölum.