„Þróun sérfræðiþekkingar í hjúkrun til framtíðar“ er yfirskrift málþings hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands og Landspítala sem haldið verður miðvikudaginn 17. mars 2021, kl. 13:00 til 15:15, í stofu 103-C í Eirbergi, Eiríksgötu 34 í Reykjavík.
Sérfræðingum í hjúkrun á Íslandi hefur fjölgað hratt á síðustu áratugum, einkum á Landspítala. Heilbrigðisáætlun til 2030, bygging nýs Landspítala og breytt samsetning íslensku þjóðarinnar gefa tilefni til að ígrunda nýjar þarfir fyrir þekkingu og færni sérfræðinga í hjúkrun.
Málþingið er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu. Því verður streymt en allir þurfa að skrá sig. Ef sóttvarnarreglur breytast verður einvörðungu streymi.
Þetta málþing átti upphaflega að vera í mars 2020 en var frestað til hausts vegna Covid-19. Þá var ástandið engu betra og því var beðið með málþingið þar til nú.
Skráning hér
Fundarstjóri: Herdís Sveinsdóttir, deildarforseti hjúkrunarfræðideildar HÍ.
Dagskrá
13:00-13:10 Opnun málþings
13:10-13:25 Sérfræðiþjónusta hjúkrunarfræðinga á Landspítala - horft til framtíðar – Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala og prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ.
13:25-13:40 Hvers vegna sérfræðingar í hjúkrun á Íslandi? – Gísli Kort Kristófersson, dósent við Háskólann á Akureyri og formaður Deildar sérfræðinga í hjúkrun
13:40-14:00 Hressing
14:00-14:20 Sérfræðiþekking í hjúkrun - Helga Jónsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ
14:20-14:40 Einkenni og árangur sérfræðistarfa í hjúkrun - Sigríður Zoëga, dósent við hjúkrunarfræðideild HÍ og sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala
14:40-15:15 Umræður