Ákvörðun farsóttanefndar og viðbragðsstjórnar um heimsóknir á Landspítala til og með 31. ágúst 2020:
1. Heimsóknir til sjúklinga í Fossvogi og við Hringbraut eru með þeim hætti að milli kl. 16:00 og 19:00 verður einum aðstandanda (og fylgdarmanni ef nauðsyn krefur) heimilt að heimsækja inniliggjandi sjúklinga í að hámarki eina klukkustund. Starfsfólki er heimilt að vísa fólki frá ef fleiri en einn gestur mætir í heimsókn (fylgdarmaður undanskilinn).
2. Heimsóknir til sjúklinga á Landakoti og Vífilsstöðum eru með þeim hætti að milli kl. 16:00 og 19:00 er einum aðstandanda (og fylgdarmanni ef nauðsyn krefur) heimilt að heimsækja inniliggjandi sjúklinga í að hámarki eina klukkustund. Starfsfólki er heimilt að vísa fólki frá ef fleiri en einn gestur mætir í heimsókn (fylgdarmaður undanskilinn). Aðstandendur eru beðnir um að hafa samband við ritara viðkomandi legudeildar og gera áætlun um heimsóknir.
3. Á Grensásdeild geta tveir gestir komið í einu í heimsókn á tímabilinu 16:00 til 20:00.
4. Á líknardeild í Kópavogi eru leyfðar heimsóknir frá kl. 13:00 til 20:00. Hver sjúklingur getur að hámarki fengið fjóra í heimsókn í einu.
5. Á geðdeildum við Hringbraut eru leyfðar heimsóknir eins í einu í 30 mínútur í senn frá kl. 16:00 til 19:00.
6. Á Kleppi eru heimsóknir í samráði við starfsfólk viðkomandi deildar.
7. Í Rjóðri eru heimsóknir í samráði við starfsfólk.
8. Meðganga, fæðing og sængurlega – sjá hér
9. Bráðamóttaka í Fossvogi – sjá hér
Undantekningar frá þessum heimsóknarreglum, t.d. hvað varðar fjölda gesta, eru ávallt gerðar í samráði við starfsfólk viðkomandi deildar og er þá tekið mið af aðstæðum hverju sinni.