Bókaðir tímar og bráðakomur
Gildir á meðgönguvernd, fósturgreiningu og bráðþjónustu kvennadeilda, meðgöngu- og sængurlegudeild og fæðingarvakt.
- Konur sem eiga bókaðan tíma í fósturgreiningu (ómskoðun) mega hafa aðstandanda með sér í skoðuninni.
- Konur sem eiga tíma í meðgönguvernd mega hafa aðstandanda með sér í viðtöl og skoðanir. Við beinum þeim tilmælum til kvenna að hugleiða vel þörfina á því og aðeins koma með aðstandanda með sér í viðtöl ef þeim finnst það mjög mikilvægt.
- Ekki er hægt að hafa aðstandanda með í dagannareftirlit á 22-B.
- Konur sem fá tíma á bráðaþjónustu 22B mega hafa með sér aðstandanda í viðtal og skoðun en vegna þrengsla á sumum skoðunarstofum getur verið að aðstandandi verði beðinn að bíða á biðstofu á meðan skoðun fer fram. Aðstandendur þurfa því að vera viðbúnir því að víkja af deildinni óski starfsfólk eftir því. Það sama gildir um bráðakomur á meðgöngu- og sængurlegudeild 22-A og skoðanir á fæðingarvakt 23-B, utan opnunartíma bráðaþjónustu.
Sængurlega
Gildir á meðgöngu- og sængurlegudeild og fæðingarvakt.
- Maki má vera hjá sængurkonu eftir fæðingu. Gert er ráð fyrir að maki haldi sig sem mest inni á stofu hjá konunni og fari ekki í sameiginleg rými.
- Maki má gista, fær morgunmat og þarf að greiða gistigjald eins og hefur verið. Aðrar máltíðir þarf maki að kaupa sér í matsal LSH eða sjálfsala/kaffistofum. Ef maka vanhagar um eitthvað utan úr bæ, má biðja aðstandendur um að koma með það til viðkomandi og afhenda það í anddyri Kvennadeildar á 1. hæð.
- Maki getur ekki dvalið á deildinni ef konan liggur með annarri konu á stofu en getur komið í heimsókn milli kl. 16:00 og 19:00 í að hámarki eina klukkustund.
Innlögn á meðgöngu og endurinnlögn eftir fæðingu
Gildir á meðgöngu- og sængurlegudeild og fæðingarvakt.
- Aðstandandi getur ekki fylgt konum sem þurfa innlögn á meðgöngu og í aðdraganda fæðingar, s.s. vegna gangsetningar, verkjameðferðar eða sérstaks eftirlits. Sama gildir um endurinnlagnir eftir fæðingu.
- Samkvæmt reglum spítalans um heimsóknir frá 18. maí getur einn aðstandandi komið í heimsókn milli kl. 16:00 og 19:00 í að hámarki eina klukkustund. Hér er eingöngu átt við maka eða einn náin aðstandanda.
- Aðrar heimsóknir eru ekki leyfðar.
Fæðing
Gildir á fæðingarvakt og meðgöngu- og sængurlegudeild (valkeisarar)
- Einn aðstandandi getur verið hjá konu frá því að hún er flutt á fæðingarstofu.
- Einn aðstandandi getur fylgt konu í keisara, hvort sem er bráða- eða valkeisari.
- Eingöngu er hægt að leyfa einum aðstandanda að vera með konu í fæðingu, engar undantekningar verða leyfðar á því.
- Engar heimsóknir eru leyfðar á fæðingarvakt.
Aðstandendur eru vinsamlegast beðnir um að:
- Virða 2 m fjarlægðarviðmið og víkja frá heilbrigðisstarfsfólki þegar verið er að sinna konu og barni.
- Spritta hendur við komu á deild og fylgja leiðbeiningum varðandi sóttvarnir.
- Nota ekki sameiginleg rými nema brýna nauðsyn beri til.
- Koma ekki á sjúkrahúsið ef þeir hafa einkenni sem gætu bent til COVID-19 sýkingar.
Tengt efni:
Meðganga, fæðing, sængurlega, brjóstagjöf og nýburinn - spurt og svarað um Covid-19