Nefnd um blóðhlutanotkun á Landspítala stendur fyrir vitundarvakningu um blóðhluta vikuna 30. október - 3. nóvember. Tilgangurinn með þessari blóðhlutaviku er að vekja starfsfólk spítalans til vitundar um nokkur veigamikil atriði tengd blóðhlutanotkun.
Nefnd um blóðhlutanotkun á Landspítala hefur starfað frá hausti 2016, en hlutverk nefndarinnar er að stuðla að bættri blóðbankaþjónustu og öruggri og markvissri notkun blóðhluta. Meðal stærstu verkefna nefndarinnar eru að bæta vinnulag við pöntun blóðhluta, auka skráningu blóðinngjafa í Interinfo tölvukerfið og að uppfæra klínískar leiðbeiningar um blóðhlutanotkun.