Takmarkanir verða á umferðarleiðum við Landspítala Hringbraut á menningarnótt í Reykjavík laugardaginn 19. ágúst 2017.
Umferð verður ekki leyfð af Snorrabraut né eftir gömlu Hringbrautinni. Lokunin tekur gildi kl. 07:00 og stendur til 02:00.
Þeim sem eiga erindi á spítalann verður hleypt í gegnum lokunina en þurfa að gera grein fyrir sér.