Vísindagangan (e. March for Science) fer fram í miðbæ Reykjavíkur á Degi Jarðar laugardaginn 22. apríl 2017 og hefst kl. 13:00. Markmið göngunnar er að sýna vísindafólki samstöðu og um leið fagna vísindum sem mikilvægri stoð í lýðræðislegu samfélagi. Efnt verður til fundar í Iðnó að lokinni göngu þar sem rætt verður um þá hættu sem steðjar að vísindastarfi og vísindafólki.
Hugmyndin að Vísindagöngunni kviknaði meðal vísindafólks og áhugafólks um vísindi í Bandaríkjunum í lok janúar en gengið verður til stuðnings vísindum í Washington D.C. þann 22. apríl. Hugmyndin barst um heiminn og til varð alþjóðahreyfing sem standa mun fyrir sams konar göngum víða um lönd. Hér á landi standa vísindamenn og áhugafólk um vísindi fyrir göngunni.
Markmið hreyfingarinnar er meðal annars að vekja athygli á vísindum sem einni af meginstoðum lýðræðislegs samfélags sem þjónar sameiginlegum hagsmunum þjóða og stuðlar m.a. að upplýstum ákvörðunum í þágu almennings.
Í Vísindagöngunni er einnig ætlunin að fagna vísindunum, því hlutverki sem þau hafa í lífi okkar allra og undirstrika nauðsyn þess að virða og hvetja til rannsókna sem stuðla að auknum skilningi á heiminum. Því þurfi að standa vörð um þau.
Safnast verður saman á Skólavörðuholti við styttuna að Leifi Eiríkssyni og gengið niður Skólavörðustíg og Bankastræti, eftir Austurstræti, yfir Austurvöll og að Iðnó. Þar verður haldinn umræðufundur sem hefst á stuttum erindum frá vísindafólki en þau munu fjalla um hættuna sem steðjar að vísindunum í Bandaríkjunum og víðar og áhrif þess á umheiminn.
Nánari upplýsingar um gönguna hér á landi á Facebook:
Vefur hinnar alþjóðlegu hreyfingar