Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra skrifar undir samning miðvikudaginn 11. nóvember 2015 við LNS SAGA ehf. vegna byggingar á sjúkrahóteli sem er fyrsti hluti byggingar nýs Landspítala við Hringbraut.
Ráðherrann tekur einnig fyrstu skóflustungu að sjúkrahótelinu.
Athöfnin verður á norðurhluta lóðar Landspítala Hringbraut milli kvennadeildahúss,
K-byggingar og Barónsstígs og hefst kl. 11:00.
Nýr Landspítali ohf. býður starfsmönnum Landspítala að vera við skóflustunguna og samgleðjast á þessum stóra degi.