Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, opnar Facebook síðu Landspítala í matsal spítalans við Hringbraut í dag, þriðjudaginn 26. nóvember 2013, kl. 15:00. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra verður viðstaddur ásamt stýrihópi síðunnar.
Landspítali opnaði fyrir notkun Facebook í upphafi mánaðarins og tilkynnti um leið að í undirbúningi væri eigin síða spítalans. Við undirbúninginn hefur spítalinn notið aðstoðar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem um nokkurt skeið hefur haldið úti lifandi Facebook síðu við góðan orðstír. Notkun samfélagsmiðla í heilbrigðisþjónustu fer vaxandi og hefur Landspítali horft sérstaklega til fordæmis Mayo Clinic í Bandaríkjunum sem ítrekað hefur fengið viðurkenningar fyrir notkun og þróun samfélagsmiðlaí sinni þjónustu.