"Líffræði stofnfrumna: frá vefjamyndun til krabbameins" er yfirskrift fyrirlesturs Þórarins Guðjónssonar dósents á vísindadagskrá í Hringsal á Landspítala Hringbraut fimmtudaginn 28. apríl 2011. Þórarinn er forstöðumaður rannsóknarstofu í stofnfrumfræðum, blóðmeinafræðideild Landspítala.
Fyrirlesturinn er liður í Vísindum á vordögum á Landspítala sem hefjast 28. apríl með opnun veggspjaldasýningar í K-byggingu á Landspítala Hringbraut. Höfundar veggspjalda verða á staðnum.