Stelpurnar á bráðamóttöku barna verða með kökubasar í anddyri Barnaspítala Hringsins miðvikudaginn 20.april 2011, kl. 14:00. Í boði verður alls kyns góðgæti á viðráðanlegu verði, gæðakökur og gómsætar, sérbakaðar til að renna ljúft niður í páskafríinu. Basarinn er fjáröflun vegna námsferðar til Boston, þar sem ætlunin er að kynna sér forflokkunarkerfi/triage sem stendur til að taka upp á bráðamóttöku barna.
Allir eru velkomnir.
Allir eru velkomnir.