Vísindi á vordögum 2010, árleg kynning á vísindastarfi á Landspítala, hefst með opnun veggspjaldasýningar í K-byggingu á Landspítala Hringbraut þriðjudaginn 4. maí, kl. 11:30. Vísindadagskrá verður í Hringsal 4. maí kl. 13:00 til 16:00. Gestafyrirlesari í ár er Helga Jónsdóttir prófessor við hjúkrunardeild Háskóla Íslands. Einnig verður kynnt stofnun nýrrar rannsóknarstofu í bráðafræðum. Tilkynnt verður um heiðursvísindamann ársins á Landspítala og ungan vísindamann ársins og halda þeir erindi um rannsóknir sínar. Auk þess verður úthlutað styrkjum úr Vísindasjóði Landspítala.
Leit
Loka