Fulltrúar hönnunarteymanna 5 sem keppa um hönnun nýs Landspítala fara í skoðunarferð um Landspítala Hringbraut þriðjudaginn 23. mars 2010, kl. 13:00 til 15:00.
Í teymunum eru arkitektar og verkfræðingar og þau eru öll leidd af íslenskum hönnuðum.
Hönnunarteymin eiga að skila tillögum sínum 10. júní og niðurstaða dómnefndar að liggja fyrir 9. júlí. Skila á tillögum að 66.000 m2 nýbyggingu Landspítala og 10.000 m2 byggingu Háskóla Íslands.
Ráðgert að samningur um hönnun liggi fyrir í ágúst og að framkvæmdir hefjist á næsta ári.
Skylt efni:
http://www.haskolasjukrahus.is/