Tilkynning frá sviðsstjóra lækninga á geðsviði:
Iðjuþjálfun á geðdeild LSH við Hringbraut mun 1. maí 2007 leggja niður alla þjónustu við nýinnritaða sjúklinga móttökudeilda og göngudeildar. Þjónusta iðjuþjálfa skerðist því verulega frá og með þeim degi. Því miður hefur ekki tekist að ráða nýja iðjuþjálfa til starfa fyrir þá sem hafa hætt undanfarið. Fyrir vikið hafa ekki verið skrifaðir inn nýir einstaklingar í iðjuþjálfun frá því um áramót. Í sumar munu þeir starfsmenn sem eftir eru sinna þeim skjólstæðingum sem ekki hefur tekist að útskrifa eða finna önnur úrræði fyrir þá. Iðjuþjálfanemar verða ráðnir í sumarafleysingastöður.