Árleg sumarsala iðjuþjálfunar geðdeilda við Hringbraut verður haldin fimmtudaginn 26. apríl og föstudaginn 27. apríl 2007, kl. 11:00 - 15:30.
Markaðurinn er haldinn á iðjudeild 31C í geðdeildahúsi LSH við Hringbraut og er þetta síðasta salan vegna lokunar deildarinnar 1. maí.
Á sölunni verða að venju vandaðar handunnar vörur á vægu verði; úrval leirmuna, vörur unnar af trésmíðaverkstæði og saumastofu.
Í iðjuþjálfun koma bæði sjúklingar af geðdeildunum við Hringbraut og fólk utan úr bæ í endurhæfingu.
Markmið iðjuþjálfunar er að meta færni skjólstæðinga, hvetja þá og styðja til sjálfstæðis við daglega iðju.
Þar fæst aðstoð við að byggja upp líf utan stofnana; í vinnu eða námi og á heimili.
Iðjuþjálfun veitir námsstyrki tvisvar á ári í framhaldi af sumar- og jólamarkaði.
Hún getur því gegnt margvíslegu og veigamiklu hlutverki í bata margra sem glímt hafa við geðsjúkdóma.
Þeir sem vilja efla það starf eru hvattir til að koma á sumarmarkaðinn dagana 26. og 27. apríl n.k.
Kaffi og veitingasala á staðnum fimmtudaginn 26. apríl.