Ert þú sjúkraliðaneminn sem við leitum eftir!
Sjúkraliðanemi í launaða starfsþjálfun á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild
Við leitum að áhugasömum sjúkraliðanemum í launaða starfsþjálfun sem vilja vera hluti af spennandi og fjölbreyttu starfsumhverfi. Á deildinni færðu tækifæri til að vinna með fjölbreyttum sjúklingahópi hjarta-, lungna-, augn- og nýrnasjúklingum. Þú þróar færni þína á blandaðri deild skurð- og lyflækninga og velur þér vinnufyrirkomulag sem hentar þér best, hvort sem það er fast starf eða sveigjanleg tímavinna.
Við tökum vel á móti öllum
- Ertu að leita að deild til að taka launaða starfsþjálfun? Frábært!
- Hefurðu ekki unnið á Landspítala áður? Komdu bara! Við þjálfum þig vel og hvetjum þig eindregið til að sækja um.
Af hverju að velja okkur?
Þú verður hluti af öflugum og áhugasömum hópi starfsfólks sem tekur vel á móti nýju samstarfsfólki. Við leggjum mikla áherslu á að veita góða einstaklingshæfða aðlögun sem er sniðin að þínum þörfum og reynslu.
Vinnuvikan er 36 stundir fyrir starfsfólk í fullri vaktavinnu og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Að loknu starfsnámi er möguleiki á áframhaldandi vinnu.
Hvenær getur þú byrjað?
Störfin eru laus strax eða eftir samkomulagi. Við erum sveigjanleg og hlökkum til að heyra frá þér! Þetta gæti orðið upphafið að spennandi ferðalagi í hjúkrun. Landspítali er háskólasjúkrahús með afar fjölbreytt störf og starfsemi. Spítalinn er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu og þar eru fjölmörg tækifæri til starfsþróunar og nýrra áskorana.
Hér er um að ræða starfsþjálfun sem er hluti náms samkvæmt námskrá og er jafnframt launaður hluti þess (ekki verknám, ekki vinna).
Til þess að umsókn teljist gild þarf umsóknin að uppfylla eftirfarandi skilyrði;
- Tilgreina hvaða tímabil (upphaf og endir) óskað er eftir, fjölda vikna og starfshlutfall. Þetta er skráð neðst í "Annað".
- Vottorð frá skólanum fylgi í viðhengi þar sem staðfest er að þú hafir lokið öllum áföngum sem eru nauðsynlegir undanfarar starfsþjálfunar sem sótt er um. Frumriti vottorðs skal síðan skila til viðkomandi yfirmanns ef af starfsþjálfun verður.
- Skrá í hvaða skóla þú ert. Hafir þú verið í vinnu, vinnustaðanámi eða starfsþjálfun á Landspítala þarf að geta þess í "Annað" neðst í umsókninni.
- Þátttaka í að skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
- Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Að vera í virku námi samkvæmt ofanskráðu
- Staðfesting frá skóla um launað starfsnám
- Góð samskiptahæfni, jákvæðni og áhugi á teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Starfsmerkingar: heilbrigðisþjónusta, sjúkraliðanemi
Tungumálahæfni: íslenska 3/5