Sérfræðilæknir í hjartalækningum
Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í hjartalækningum. Við sérgreinina starfa um 25 sérfræðilæknar í öflugu þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans.
Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd við sjúklinga okkar. Starfshlutfall er 60% og veitist starfið frá 1. september 2025 eða eftir samkomulagi.
- Vinna á legu-, dag- og göngudeildum ásamt vaktþjónustu við hjartadeild
- Vinna við almenn störf innan hjartalækninga
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni og forstöðumann fræðigreinarinnar hjartalæknisfræði innan Háskóla Íslands
- Íslenskt sérfræðileyfi í hjartalækningum
- Breið þekking og reynsla í almennum hjartalækningum
- Sérhæfing í hjartaómun og myndgreiningu á hjarta er kostur
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,