Sérfræðingur á sviði lífeindafræði
Við sækjumst eftir öflugum lífeindafræðingi með brennandi áhuga á nærrannsóknum og mikla þjónustulund. Einhverjum sem er tilbúin að taka þátt í að þróa nýtt og krefjandi starf sérfræðings í öflugu teymi okkar á rannsóknakjarna Landspítala. Þar fara fram greiningar, rannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í klínískri lífefnafræði og blóðmeinafræði. Á deildinni starfa á annað hundrað einstaklingar og leggjum við ríka áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart vinnustaðnum og samstarfsfólki.
Við viljum ráða einstakling sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði nærrannsókna, sem er lausnamiðaður, hvetjandi og brennur af áhuga fyrir eflingu einstaklinga, gæðastarfi, teymisvinnu og jákvæðum úrlausnum mála. Þekking á vísindastarfsemi og kennslu á sviði lífeindafræði er kostur.
- Er leiðtogi í þverfaglegri samvinnu
- Hefur umsjón með nærrannsóknum rannsóknarkjarna ásamt því að sitja í stýrinefnd LSH um nærrannsóknir
- Vinnur að gæðamati, aðferðalýsingum og verklagsreglum
- Þróar, framkvæmir og metur nýjungar í rannsóknum ásamt stjórnendum deildar
- Skipuleggur og tekur þátt í kennslu eftir atvikum
- Metur fræðsluþarfir starfsfólks, fræðir og metur árangurinn
- Hvetur og aðstoðar starfsfólk við að efla faglega færni og þroska
- Íslenskt starfsleyfi sem lífeindafræðingur
- Íslenskt sérfræðileyfi sem lífeindafræðingur
- Framúrskarandi hæfni í íslensku og góð enskukunnátta
- Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
- Hæfni og geta til að starfa í og leiða teymi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
- Frumkvæði, yfirsýn og skipulagsfærni
- Þekking á vísindastarfsemi og kennslu á sviði lífeindafræði er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Lífeindafræðingur, rannsóknir,
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5