Lyfjaþjónusta leitar að starfsfólki í sjúkrahúsapótek
Viltu breyta til? Langar þig að kynnast öflugu fólki og takast á við skemmtileg verkefni? Þá erum við með rétta starfið fyrir þig.
Lyfjaþjónusta Landspítala óskar eftir að ráða öfluga liðsmenn í sjúkrahúsapótek Landspítala til að þjónusta deildir spítalans og sjúklinga. Í Lyfjaþjónustu Landspítala starfa um 80 lyfjafræðingar, lyfjatæknar og sérhæft starfsfólk. Lyfjaþjónusta er stöðugt að þróa starfsemi sína til að bæta lyfjaöryggi og lyfjaumsýslu á Landspítala. Verkefni Lyfjaþjónustu eru fjölbreytt og fela meðal annars í sér að þjónusta sjúklinga á öllum deildum spítalans með öflun, blöndun, skömmtun og dreifingu lyfja ásamt faglegri upplýsingagjöf um lyf. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
- Hluti af þjónustuteymi sem sinnir ákveðnum deildum
- Þróun þjónustuteyma á deild
- Birgðastýring lyfja á lyfjaherbergi
- Lyfjaskömmtun
- Fylgni við gæðakerfi og þátttaka í þróun gæðavinnu
- Önnur tilfallandi verkefni
- Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð
- Þjónustulund
- Reynsla af störfum innan sjúkrahúsapóteks er kostur
- Menntun í heilbrigðisfræðum er kostur
- Geta til þess að vinna samkvæmt gæðastöðlum
- Góð samskiptahæfni, liðsmaður og jákvætt viðmót
- Staðgóð þekking á íslensku er kostur
- Góð tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.
Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5