Áhugavert skrifstofustarf á Brjóstamiðstöð
Við leitum að metnaðarfullum samstarfsmanni til að sinna sérhæfðum skrifstofustörfum á göngudeild Brjóstamiðstöðvar.
Ef þú ert lausnamiðaður, þjónustulipur og með góða samskiptahæfni þá gæti þetta hentað þér. Í boði er einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks og gott starfsumhverfi. Starfshlutfall er 100%, unnið er í dagvinnu. Upphaf starfa er skv. samkomulagi.
Á Brjóstamiðstöð fer fram öflug starfsemi og starfar þar öflugt teymi sérfræðinga frá mörgum sérgreinum og fagstéttum. Þjónustan er í stöðugri þróun þar sem mikil áhersla er lögð á þjónustumiðaða nálgun og tæknivæðingu eininga innan Brjóstamiðstöðvar. Við leggjum mikla áherslu á teymisvinnu og uppbyggingu mannauðs með það í huga að byggja upp skemmtilegan vinnustað með möguleika á að taka þátt í daglegri umbótavinnu samhliða hefðbundnum störfum. Lögð er rík áhersla á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart skjólstæðingum og samstarfsfólki.
Vinnustaðurinn og staðsetningin er heldur ekki af verri endanum. Brjóstamiðstöð er staðsett á 3. og 4. hæð að Eiríksgötu 5 í hjarta Reykjavíkur þar sem útsýnið fangar mann á hverjum degi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Tímabókanir
- Upplýsingagjöf og samskipti við sjúklinga, starfsfólk og stofnanir
- Sérhæfð störf, gæðaskráning, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfi Landspítala
- Ábyrgð á daglegum viðfangsefnum samkvæmt verklagi
- Ýmis verkefni í samvinnu við deildarstjóra og yfirlækni
- Utanumhald sérhæfðra verkefna, s.s. fundi, vinnustofur og sérverkefni
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
- Reynsla af sérhæfðum skrifstofustörfum
- Jákvætt viðmót, þjónustulipurð og samskiptahæfni
- Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta er skilyrði, þekking á Sögukerfi Landspítala kostur
- Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað nám og/ eða reynsla sem nýtist í starfi
- Stundvísi og áreiðanleiki
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, skrifstofumaður, heilbrigðisritari, skrifstofustarf
Tungumálahæfni: íslenska 3/5, enska 3/5