Félagsráðgjafar í félagsráðgjafaþjónustu
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum félagsráðgjöfum til starfa á Landspítala. Viðkomandi þurfa að búa yfir færni til að vinna að lausnum og hafa metnað til að veita framúrskarandi þjónustu.
Um er að ræða faglega krefjandi störf á spennandi vettvangi fyrir félagsráðgjafa sem hafa áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi. Störfin eru við ólíkar einingar innan Landspítala.
Landspítali býður upp á góða aðlögun fyrir nýútskrifaða félagsráðgjafa sem og reyndari með markvissri handleiðslu og fræðslu. Á spítalanum eru fjölbreytt tækifæri til sí- og endurmenntunar.
Á Landspítala starfa um 50 félagsráðgjafar í þverfaglegum teymum sem sinna margþættri þjónustu við sjúklinga á ólíkum deildum. Landspítali er fjölskylduvænn vinnustaður og býður upp á heilsueflandi vinnuumhverfi, samgöngusamninga og 36 stunda vinnuviku.
Ráðning er frá 01.06.2025 eða eftir nánara samkomulagi.
- Aðstoða sjúklinga og aðstandendur við að leita félagslegra réttinda
- Samvinna við aðrar stofnanir í heilbrigðis- og félagsþjónustu
- Fræðsla til sjúklinga, aðstandenda, samstarfsfólks og starfsfólks annarra stofnana
- Stuðningur við sjúklinga og aðstandendur við að takast á við breytingar sem verða í kjölfar veikinda
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka í þróunarverkefnum sem efla þjónustu við sjúklinga
- Milliganga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna samkvæmt lögum
- Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
- Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa
- Áhugi á félagsráðgjöf á heilbrigðissviði
- Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi
- Reynsla af vinnu með fjölskyldum er kostur
- Reynsla og þekking á félagslegum úrræðum og samstarfi stofnana
- Hugarfar þar sem leitast við að ná stöðugum árangri
- Geta til að vinna undir álagi
- Góð tölvufærni
- Frumkvæði, framsýni og lausnamiðuð hugsun
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur um störf á barnadeildum skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, félagsráðgjafi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5 enska 3/5