Sérfræðilæknir í nýrnalækningum
Starf sérfræðilæknis í nýrnalækningum er laust til umsóknar. Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd sjúklinga okkar. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júní 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Við nýrnalækningar starfar öflugur hópur sérfræðilækna í samvinnu við aðra faghópa að málefnum fólks með nýrnasjúkdóma. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun.
- Vinna á legudeildum, göngudeild nýrnalækninga og skilunardeildum
- Vinna við ráðgjöf nýrnalækninga
- Þátttaka í vaktþjónustu nýrnalækninga
- Þátttaka í kennslu og vísindastarfi
- Þátttaka í öðrum verkefnum í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar
- Þátttaka í þjónustu á vegum almennra lyflækninga í samráði við yfirlækni nýrnalækninga, þ.m.t. vaktþjónusta
- Íslenskt sérfræðileyfi í lyflækningum og nýrnalækningum
- Þekking og reynsla í meðferð sjúklinga með nýrnasjúkdóma, þ.m.t. langvinnan nýrnasjúkdóm og meðferð nýrnabilunar á lokastigi; skilun og ígræðslu nýra
- Reynsla af kennslustörfum
- Hæfni og geta til að starfa í þverfaglegu teymi
- Góðir samskiptahæfileikar
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5