Iðjuþjálfi - Fjölbreytt starf á barna- og unglingageðdeild
Við leitum að liðsmanni í samhent teymi iðjuþjálfa á barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL). Í boði er fjölbreytt starf og tækifæri til að öðlast víðtæka þekkingu innan fagsins með margvíslegum möguleikum á starfsþróun. Um er að ræða 80-100% starf. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á BUGL er tekið á móti börnum upp að 18 ára aldri sem eiga við geðheilsuvanda að stríða. Þar er veitt sérhæfð þverfagleg þjónusta sem miðar að þörfum barna og fjölskyldna þeirra. Góð samvinna er við fagaðila í nærumhverfi. Iðjuþjálfi starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk er að meta þörf á iðjuþjálfun og veita ráðgjöf og þjálfun til barns/unglings, foreldra og skóla. Helsta ráðgjöfin snýr að daglegum venjum og dagskipulagi, markmiðasetningu og skynúrvinnslu. Einnig er unnið með þátttöku og færni í skólaumhverfi, félagsfærni, tómstundir og áhugamál. Iðjuþjálfar á BUGL starfa á göngu-, dag- og legudeild.
Á Landspítala starfa um 30 iðjuþjálfar í þverfaglegum teymum og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Lögð er rík áhersla á að taka vel á móti nýjum starfsmönnum og veitt er góð aðlögun.
- Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem hann veitir og mat á árangri meðferðar
- Skráning og skýrslugerð
- Fræðsla og skipulagning á eigin starfi
- Fræðsla til sjúklinga, aðstandenda og umhverfis
- Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
- Þátttaka í fagþróun
- Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
- Afburða samskiptafærni og samstarfshæfileikar
- Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
- Færni til að vinna sjálfstætt, skipuleggja og forgangsraða verkefnum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Iðjuþjálfi
Tungumálahæfni: íslenska 3/5