Yfirlæknir Rannsóknakjarna á Landspítala
Starf yfirlæknis rannsóknakjarna á Landspítala er laust til umsóknar. Landspítali auglýsir eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum yfirlækni sem er reiðubúinn að leiða og efla starfsemi rannsóknakjarna ásamt því að tryggja árangursríkt mennta- og vísindastarf. Starfið er unnið í nánu samstarfi við yfirlækni blóðmeinafræði á rannsóknakjarna, deildarstjóra, forstöðumann, framkvæmdastjóra og annað samstarfsfólk.
Viðkomandi þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni á að takast á við breytingar. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. maí 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. Næsti yfirmaður er forstöðumaður klínískrar rannsókna- og blóðbankaþjónustu.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun klínískrar lífefnafræði við sjúkrahúsið, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf
- Ber læknisfræðilega ábyrgð á starfsemi einingar í samræmi við stefnu Landspítala
- Ber faglega, fjárhagslega og starfsmannaábyrgð innan rannsóknakjarna í samráði við deildarstjóra
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Tryggir árangursríkt mennta- og vísindastarf innan starfseiningar
- Ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð sérgreinar með það að markmiði að hún sé hagkvæm og innan rekstrarviðmiða hvers árs
- Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar
- Þróar þjónustu innan ábyrgðarsviðs með áherslu á samhæfingu við aðra starfsemi
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Íslenskt sérfræðileyfi í klínískri lífefnafræði, meinefnafræði eða skyldum greinum
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Jákvætt lífsviðhorf, lausnarmiðuð nálgun og framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumarkandi hugsun
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum
- Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á)
- Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn
- Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Yfirlæknir, sérfræðilæknir, stjórnunarstarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5