Stjórnsýsludeild klínískrar þjónustu - Yfirlæknir
Laust er til umsóknar starf yfirlæknis við stjórnsýsludeild klínískrar þjónustu á Landspítala. Leitað er eftir reyndum sérfræðilækni með leiðtogahæfileika og stjórnunarreynslu í lykilstarf innan deildarinnar. Um er að ræða yfirlæknisstarf með einþátta ábyrgð. Næsti yfirmaður er yfirlæknir stjórnsýsludeildar klínískrar þjónustu.
Stjórnsýsludeild klínískrar þjónustu er deild á sviði framkvæmdastjóra lækninga. Deildin sinnir meðferð mála sem varða öryggi sjúklinga og faglegri meðferð sjúkraskrárupplýsinga í umboði framkvæmdastjóra lækninga og í samræmi við lög. Þá sinnir deildin ýmsum öðrum faglegum verkefnum að beiðni framkvæmdastjóra. Unnið er þverfaglega og er teymisverklag haft í fyrirrúmi. Starfsemin er bæði fjölbreytt og krefjandi.
Starfshlutfall er 100% og er staðan laus frá 1. febrúar 2025 eða eftir samkomulagi. Gerð er krafa um helgun í starfi.
- Umsýsla og meðferð mála vegna kvartana, sjúklingatryggingarmála og alvarlegra sjúklingaatvika auk faglegra sjúkraskrármála og annarra tilfallandi faglegra verkefna að beiðni framkvæmdastjóra
- Þátttaka í stefnumótun, fræðslu og þróunarverkefnum deildarinnar í samvinnu við yfirlækni
- Framfylgir stefnu spítalans og áherslum framkvæmdastjórnar
- Íslenskt sérfræðileyfi
- Leiðtogahæfileikar, faglegur metnaður og framúrskarandi samskiptahæfni eru skilyrði
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
- Stjórnunarreynsla og/ eða reynsla af stjórnsýslu er kostur
- Reynsla og þekking á rannsókn og meðferð alvarlegra sjúklingaatvika er kostur
- Þekking og fyrri reynsla í meðferð kvörtunarmála og sjúklingatryggingamála er kostur
- Þekking og reynsla í meðferð sjúkraskrármála er kostur
- Þekking á rafrænum kerfum og gæðakerfum Landspítala er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum
- Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á)
- Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn
- Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mats stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Yfirlæknir, sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 5/5