Sérfræðilæknar í geðþjónustu
Laus eru til umsóknar störf sérfræðilækna í geðþjónustu Landspítala. Störfin henta sérfræðilæknun í geðlækningum.
Geðþjónusta Landspítala er stærsti þjónustuveitandi 3. stigs geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi og veitir ráðgjöf til geðþjónustuaðila á landinu öllu. Störf sérfræðilækna í geðþjónustu eru á legudeildum, dagdeildum og göngudeildum, í bráðaþjónustu, endurhæfingarþjónustu og réttar- og öryggisgeðþjónustu; á meðferðareiningum geðrofssjúkdóma og meðferðareiningum lyndisraskana. Um er að ræða fjölbreytt störf á ýmsum einingum innan geðþjónustunnar og eru umsækjendur hvattir til að nefna áhugasvið sitt í umsóknarferlinu.
Leitað er að sérfræðilæknum sem hafa áhuga á að vinna í umhverfi þar sem fjölbreytni, metnaður og þverfagleg teymisvinna eru í fyrirrúmi með áherslu á umbótastarf og öryggi.
Störfin er laus frá 1. ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
- Mat og greining á bráðum og alvarlegum geðrænum vanda
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka í kennslu og vísindastarfi, fræðslu og handleiðslu
- Þátttaka í gæða-, umbóta- og rannsóknastarfi
- Geðlæknar sinna einnig vöktum og ráðgjöf sérfræðinga á geðsviði
- Íslenskt sérfræðileyfi í geðlækningum
- Áhugi á að veita vandaða og gagnreynda meðferð
- Áhugi á að starfa í sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu bráðasjúkrahúss
- Mikil hæfni í samskiptum áskilin, faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á þróun og sérhæfingu í starfi, sveigjanleiki til að tileinka sér nýjungar
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir,
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 3/5