Niðurstaða liggur nú fyrir úr samnorrænu lyfjaútboði sem var auglýst í júní sl. í útboðinu var óskað eftir boðum í lyf sem oft er vísað í sem fasa 5 og 6 lyf, í líftíma lyfs á markaði (medicine lifecycle). Þetta eru lyf sem oft er erfitt að útvega sökum þess að það ríkir fákeppni (einokun) á markaði um þessi lyf.
Óskað var tilboða í eftirfarandi lyf. Ampicillin, Ceftazidime, Ceftriaxone, Cefuroxime, Ciprofloxacin, Gentamicin, Meropenem, Methotrexate, Metronidazole, Ondansetrone, Paracetamol og Vancomycin gefin í æð og Anagrelide töflum.
Ánægjulegt er frá því að segja að nú bárust einnig boð til Íslands.
Sjá nánar hér:
Andet fælles nordiske udbud på lægemidler afsluttet
Second joint nordic tendering procedure for medicines completed