Áfallateymi
Staðsetning: Göngudeild Kleppi
Þjónustutími: alla virka daga 08:00-16:00
Hafa samband: Þeir sem eru í meðferð eða eru á biðlista eftir meðferð í PTSD línu teymisins geta haft samband með því að senda fyrirspurn í gegnum Heilsuveru. Þeir sem eru í þjónustu sálfræðiþjónustu Neyðarmóttöku eða Áfallamiðstöðvar fá upplýsingar um hvernig þeir geti haft samband við sinn meðferðaraðila.
Hagnýtar upplýsingar
Í PTSD línu teymisins er gert ítarlegt greiningarmat með tilliti til áfallastreituröskunar og veitt sérhæfð sálfræðimeðferð við áfallastreituröskun ef þörf er á. Í sálfræðiþjónustu Áfallamiðstöðvar er veitt áfallahjálp og sálrænn stuðningur, um er að ræða skammtímaþjónustu. Í sálfræðiþjónustu Neyðarmóttöku er veitt sú þjónusta sem þörf er á út frá afleiðingum þess kynferðisbrots sem leitað var á Neyðarmóttökuna vegna. Alltaf er veitt áfallahjálp og sálrænn stuðningur og greining og meðferð við áfallastreituröskun ef þörf er á.