Dag- og göngudeild átröskunar

Staðsetning:  Hvítabandið, Skólavörðustíg 37, 101 Reykjavík

Þjónustutími:  kl. 8.30 - 16:00 virka daga

Sími: 543 4600

Netfang: atroskun@landspitali.is

 

 Átröskunarteymi LSH er þverfaglegt teymi sem hefur starfað síðan 1. febrúar 2006. Það heyrir undir ferli- og bráðaþjónustu geðsviðs LSH og starfar bæði á dagdeild og göngudeild. Í því starfa geðlæknir (teymisstjóri), geðhjúkrunarfræðingur, næringarfræðingur, sálfræðingar, félagsráðgjafi, listmeðferðarfræðingur og stuðningsfulltrúi.

Teymið sinnir greiningu og meðferð við átröskunum og öðrum meðkvillum. Boðið er upp á fræðslu og stuðning við aðstandendur. Teymið sinnir einnig ráðgjöf og fræðslu til annarra deilda LSH ásamt símaráðgjöf til aðila utan LSH.

 

Til að komast í meðferð þarf tilvísun frá fagfólki t.d. heimilislækni, námsráðgjafa eða öðrum meðferðaraðilum. Meðferð fer fram á göngudeild eða á dagdeild eftir því sem við á og er ætluð fyrir fólk 18 ára og eldri. Barna- og unglingageðdeild við Dalbraut sinnir börnum yngri en 18 ára.

 

Að neðan er tilvísunareyðublað fyrir fagfólk fyrir greiningu/meðferð í átröskunarteymi LSH. Óheimilt er að senda tilvísunina í tölvupósti. Hægt er að símsenda tilvísunina með faxi á faxnúmer 543 4621 eða senda hana á póstfang átröskunarteymisins: Átröskun - Hvítabandið, Skólavörðustíg 37, 101 Reykjavík. Reynt er að sinna öllum beiðnum eins skjótt og unnt er, en biðtími eftir tíma getur verið frá 2-4 vikur. Ef um bráðatilvik er að ræða er fólki bent á að leita til bráðaþjónustu geðsviðs við Hringbraut.

Tilvísunareyðublað fyrir fagfólk

Fréttir frá Átröskun

 
 

Síðast breytt: 08.03.2010 11:39
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli