Dagdeild fíknimeðferðar

Dagdeild fíknimeðferðar Teigur er meðferðarstöð fyrir einstaklinga með geðraskanir og vímuefnamisnotkun.  Tilvísanir koma í gengum göngudeild fíknimeðferðar.  Fólk sækir meðferðina að heiman alla virka daga í sex vikur og síðan vikulega eftirmeðferð í 12 vikur.  Meðferðin er að mestu í hópum og byggir að grunni til á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Meðferðin er einstaklingsmiðuð þannig að viðeigandi fagaðilar sinna sjúklingum með flókinn vanda (t.d. samvinna við Barnavernd) til hliðar við hina formlegu hópmeðferð.

 

Meðferðin fer að jafnaði fram á milli kl. 9:00 og 14:00 en hægt er að fá upplýsingar eða panta greiningarviðtal frá kl. 8:00 til 15:45

 

Deildin er á 1. hæð í geðdeildarbyggingu Hringbraut.

Símanúmer skiptiborðs er 543 4710

 

Síðast breytt: 01.03.2010 13:58
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli