Göngudeild fíknimeðferðar 32E

Göngudeild fíknimeðferðar 32E tekur við tilvísunum frá bráðamóttöku geðdeildar og öðrum heilbrigðisstofnunum. Göngudeildin er annars vegar greiningarstöð og hins vegar meðferðardeild.  Eftir greiningarferli er gerð meðferðaráætlun í samvinnu við sjúklinginn sem tekur mið af aðstæðum hvers og eins. Sumir fá meðferð í göngudeildinni sjálfri t.d. fráhvarfsmeðferð, einstaklingsviðtöl eða hópmeðferð á meðan öðrum er leiðbeint í önnur úrræði t.d. innlögn á móttökugeðdeild 33A.

 

Tilvísun í fíknimeðferð

 

Áfengisráðgjafar sjá um daglegan stuðningshóp á göngudeildinni kl. 11:00 og er hann öllum opinn. Notendum þjónustunnar er vinsamlegast bent á að erfitt er að meta einstakling í greiningarviðtali ef hann er undir áhrifum áfengis eða vímuefna.

 

Deildin er á 1. hæð í geðdeildarbyggingu Hringbraut.

 

Símanúmer 

  • Móttaka          543 4050
  • Deildarstjóri     543 4098
  • Yfirlæknir        543 4097

 

Síðast breytt: 08.03.2010 10:41
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli