Móttökugeðdeild fíknimeðferðar 33A
Móttökugeðdeild fíknimeðferðar 33A er sólarhringsgeðdeild. Innlagnir fara að mestu fram í gegnum biðlista sem haldinn er á göngudeildar fíknimeðferðar. Deildin er sérhæfð í að meðhöndla alvarlegan og flókinn vanda þar sem fara saman geðræn einkenni, fráhvarfseinkenni og/eða alvarlegir líkamlegir kvillar.
Lögð er áhersla á fjölskyldufundi þar sem áætlanir um heildrænt meðferðarform, stuðning og þörf fyrir samfélagsþjónustu eru gerðar með sjúklingi. Deildin nýtir stoðþjónustu, s.s. iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, næringarráðgjöf, sálgæslu o.fl. Flestir útskrifast heim til sín en eru í eftirfylgd um tíma á göngudeild, á stofu hjá sérfræðingi eða hjá heimilislækni.
Deildin rúmar 15 sjúklinga og er á 3. hæð A-álmu í geðdeildarbyggingu við Hringbraut.
Heimsóknartímar eru eftir samkomulagi við hjúkrunarfræðinga, með sólarhrings fyrirvara
Símar
-
Vakt deild 33A 543 4080
-
Ritari 543 4042
-
Deildarstjóri 543 4044
-
Yfirlæknir 543 1000
Símatímar hjúkrunarfræðinga eru frá kl. 11:00 - 12:0
Ábendingum vegna þjónustu deildarinnar má koma til deildarstjóra eða yfirlæknis eftir því sem við á