Bráðamóttaka

 

Bráðamóttaka geðsviðs við Hringbraut er opin þeim sem eiga við bráða geðræna erfiðleika að stríða. Á bráðamóttökunni fer fram fyrsta greining. Fólki sem ekki þarf á innlögn að halda má vísa í meðferð á göngudeild sé ástæða til. Til bráðamóttöku geðsviðs getur fólk leitað með áríðandi mál af geðrænum toga án þess að eiga pantaðan tíma.

Bráðamóttaka er á 1. hæð í geðdeildarbyggingu við Hringbraut. Bráðamóttakan er opin kl. 12.00 - 19.00 virka daga og kl. 13.00 - 17.00 um helgar og alla helgidaga. Utan þess tíma geta læknar, lögregla og fulltrúar sjúklingasamtaka s.s. Geðhjálp haft beint samband við vaktlækni um skiptiborð

  • Sími: 543 4050 á þeim tíma sem opið er
  • Skiptiborð 543 1000
  • Vakthafandi hjúkrunarfræðingur sími 543 4050

Í neyðartilvikum utan þessa tíma geta sjúklingar leitað til almennu bráðamóttökunnar á Landspítala í Fossvogi

Símaráðgjöf Hjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku veita símaráðgjöf á opnunartíma varðandi aðgang að þjónustunni og annað er lítur að bráðameðferð

Síðast breytt: 04.05.2010 10:00
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli