Gildi geðsviðs
| Fagmennska |
Fagmennska er þýðing á enska orðinu Professionalism. Hugtakið grundvallast á faglegri þekkingu og birtist sem fagleg framkoma; gagnvart sjúklingum einkennist hún af virðingu, umhyggju og nærgætni; gagnvart samverkafólki af miðlun þekkingar, virðingu, heiðarleika og trausti og gagnvart samfélaginu af þjónustu, menntun og vísindastarfi. |
| Jafnræði |
Jafnræði táknar að allir þegnar samfélagsins séu jafnir. Þeir sem leita til geðsviðs Landspítala fá þjónustu á grundvelli þarfa sinna óháð þáttum sem aðgreina þá sem einstaklinga. Starfsmenn Landspítala njóta jafnræðis í starfi. |
| Virðing |
Virðing táknar virðingu fyrir sjúklingum og aðstandendum. Starfsmönnum er umhugað um velferð sjúklinga og aðstandenda. Sjúklingurinn er í fyrirrúmi, viðhorf hans og óskir eru virtar. Starfsmenn bera virðingu fyrir sjálfum sér og samstarfsmönnum sínum. |
| Öryggi |
Sjúkrahús eru áhættusvæði. Þess vegna hefur starfsfólk geðsviðs Landspítala öryggi sjúklinga, starfsfólks og umhverfis að leiðarljósi. |
| Þekking |
Þekking er hornsteinn heilbrigðis. Landspítali er þekkingarsetur sem byggir tilvist sína á að starfsfólk búi yfir og afli sér þekkingar. Þekkingaröflun er leið til að takast á við framtíðina. |
| Samvinna |
Samvinna er hér skilgreind út frá enska orðinu Partnership. Samvinna er samband sem skapast milli tveggja einstaklinga eða fleiri sem vinna saman að einhverju ákveðnu verki/verkefni. Hver einstaklingur leggur til s.s. vinnu, þekkingu og færni með það fyrir augum að deila því með öðrum og þannig ná takmarki sem sett hefur verið. |