Göngudeildarteymi

Göngudeildarteymi geðsviðs er í geðdeildarbyggingu við Hringbraut 1. hæð

Í göngudeildarteyminu starfa læknar, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar og sálfræðingar Tilvísanir í teymið koma frá bráðamóttöku geðsviðs, heilsugæslu og öðrum fagaðilum innan og utan sjúkrahúss. Allar tilvísanir eiga að berast til Göngudeildarteymis 31 E.

Leitast er við að hafa biðtíma sem allra skemmstan. Ekki er hægt að panta tíma beint hjá teyminu án tilvísunar en ef málið þolir enga bið er einstaklingum bent á að leita til bráðamóttöku. Göngudeildarteymið veitir fyrstu meðferð þeim einstaklingum sem ekki þurfa á innlögn að halda. Meðferðin í teyminu er skammtímameðferð, oftast 6 - 10 vikur.

Að meðferð lokinni er sjúklingum að jafnaði vísað til eftirfylgdar í heilsugæslu. Fyrir þá sem þurfa á lengri eða sérhæfðri meðferð eru ýmis önnur úrræði á geðsviði s.s.

Auk þess geta einstaklingar, ef þeir óska, fengið ráðgjöf um úrræði utan sjúkrahússins.

Eftirmeðferð

Þegar einstaklingur útskrifast af móttökugeðdeildum 32A, 32C og 33C, skipuleggja meðferðateymi deildanna eftirmeðferð í samráði við hann.

Síðast breytt: 04.05.2010 10:37
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli