Endurhæfing geðsviðs
| |
|
|
Endurhæfing fólks með geðsjúkdóma fer fram á Kleppi (þ.e. þrjár legudeildir, göngudeild og iðjuþjálfun), á Endurhæfingu LR á Laugarásvegi 71 og á dagdeild í Hátúni 10. Endurhæfing er samhæft, samfellt og markvisst ferli sem byggir á samvinnu milli notanda, fjölskyldu/aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks. Lögð er áhersla á að stuðla að auknum lífsgæðum hjá fólki og hvetja til ábyrgðar á eigin hegðun og lífsstíl. Meðferðin byggist m.a. á fræðslu og stuðningi til að auka virkni og ábyrgð fólks til að ná markmiðum sínum. Þátttaka í samfélaginu, valfrelsi og leið til að þroskast við breyttar aðstæður eru mikilvæg atriði í endurhæfingu geðsviðs.
Síðast breytt: 21.05.2010 15:56